01Hvernig virkar það

Frá hugmynd
í nothæft kerfi.

Þú þarft ekki að kunna að forrita eða skrifa tæknilega verklýsingu. Byrjaðu á vandamálinu sem þú vilt leysa.

01

Segðu hvað vantar.

Lýstu verkefninu með þínum eigin orðum. Við spyrjum einfaldra spurninga um hverjir nota kerfið, hvað þeir þurfa að geta gert og hvaða upplýsingar eiga að vera þar.

02

Skoðaðu og prófaðu.

Þú færð fyrstu útgáfu sem hægt er að smella í og prófa. Segðu okkur hvað á að breyta — til dæmis texta, eyðublöðum, aðgangi eða því hvernig verkefni færast á milli starfsmanna.

03

Taktu í notkun.

Þegar kerfið er eins og þú vilt hafa það hjálpum við þér að tengja vefslóð, stofna notendur og fara yfir öryggi. Síðan getur þú deilt því með þeim sem eiga að nota það.

02Allt á einum stað

Sjáðu kerfið, óskaðu eftir breytingum og fylgstu með stöðunni

Þú sérð alltaf hvað var gert, hvað hefur verið prófað og hvort kerfið sé tilbúið til notkunar.

app.vefsida.is/bokhald-ehf

Spjall

Bættu við stöðusíu og láttu viðskiptavin fá tölvupóst þegar málið lokast.
Vefsida.app: Þrjár breytingar eru tilbúnar
  • Stöðusía
  • Skráning upplýsinga
  • Tölvupósttilkynning

Forskoðun — Mínar síður hjá Bókhald ehf.

Mínar síður

3 opin mál · Ný beiðni

ÁrsreikningurÍ vinnslu
VSK gögnSvar óskast
SamningurLokið

Staða kerfis

Kerfið virkar
Gögn eru varin
Virkar í síma
Áætlaður kostnaður
620 kr.
Staða
Í vinnslu

03Algengar spurningar

Það sem gott er að vita áður en þú byrjar

Þarf ég að vita nákvæmlega hvernig kerfið á að vera?

Nei. Byrjaðu á að segja hvað tekur tíma í dag eða hvað þú vilt að notendur kerfisins geti gert. Við hjálpum þér að breyta þeirri þörf í skýra lausn.

Er þetta venjuleg vefsíða eða vefkerfi?

Vefsida.app er fyrst og fremst fyrir vefkerfi: svæði með innskráningu, eyðublöðum, gögnum og verkefnum. Kerfið opnast í vafra eins og vefsíða en gerir meira en að birta upplýsingar.

Get ég breytt kerfinu eftir að ég sé fyrstu útgáfu?

Já. Fyrsta útgáfan er tillaga sem þú getur prófað. Þú getur óskað eftir breytingum á texta, útliti og virkni áður en kerfið er tekið í notkun.

Hvað ef ég vil að manneskja fari yfir verkefnið?

Þú getur óskað eftir aðstoð sérfræðings hvenær sem er. Sérfræðingurinn sér það sem þegar hefur verið gert og getur haldið áfram með þér án þess að byrja upp á nýtt.

04Prófaðu hugmyndina

Lýstu því sem vantar.
Sjáðu fyrstu tillögu.